KR og hverfið
Krossgötur miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er formaður KR. Hann mun ræða hlutverk íþrótta, stöðu KR í Vesturbænum, íþróttamenn sem fyrirmynd o.fl. Kaffiveitingar.
Krossgötur miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er formaður KR. Hann mun ræða hlutverk íþrótta, stöðu KR í Vesturbænum, íþróttamenn sem fyrirmynd o.fl. Kaffiveitingar.
Prestur Neskirkju í 40 ár, sr. Frank M Halldórsson, verður áttræður sunnudaginn 23. febrúar. Það er biblíudagurinn í íslensku þjóðkirkjunni. Sr. Frank mun prédika í messunni í Neskirkju, sem hefst kl. 11 á sama tíma og barnastarfið. Steingrímur Þórhallsson stjórnar söng og félagar úr kór Neskirkju syngja. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Í [...]
Krossgötur miðvikudaginn 19. febrúar kl. 13.30. Gísli Sigurðsson, prófessor, talar um hve lestur okkar á fornsögum er háður þeim fyrirframhugmyndum sem við höfum um uppruna þeirra og menningarumhverfi. Hann tekur dæmi af gelískum áhrifum á íslenska menningu, valdabaráttu kirkju og veraldlegra lögsögumanna um yfirráð yfir lögunum, heimsmynd goðafræðinnar, einstökum Íslendingasögum og uppfinningu Snorra Sturlusonar að [...]
Næstu hádegistónleikar Steingríms organista sem tileinkaðir eru orgeltónlist Bach verða miðvikudaginn 19. febrúar og hefjast kl. 12.00 (til 12.25). Á dagskrá eru Orgelbuchlein og Leipzig kóralforspilin eða sálmaforleikir (forspil að sálmum) en kóraforspilum Bach eru að flestra mati tónsmíðaleg undur.
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Krossgötur miðvikudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Dagný Annasdóttir er nýr skólastjóri Melaskóla. Hún er Vestfirðingur að ætt og uppruna og ætlar að segja okkur af sjálfri sér og störfum sínum. Kaffiveitingar.
Þar er efinn og þar er trúin. Þú mátt hafa allar heimsins skoðanir á hvort sagan er trúleg eða ekki, hvort hún er leiðinleg eða skemmtileg en skilaboðin eru skýr. Í prédikun 9. febrúar 2014 - á síðasta sunndegi eftir þrenningarhátíð – ræddi Sigurður Árni um ummyndunarsöguna, gerð hennar og skilaboð. Prédikunin er að baki [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Messuþjónar aðstoða. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og léttar veitingar á Torginu eftir messu. Kl. 12.30 mun Pétur Ármannsson, arkitekt, flytja framsögu [...]
Neskirkjukynning verður eftir messu sunnudaginn 9. febrúar, kl. 12,30. Pétur Ármannsson, arkitekt, mun fjalla um Neskirkju. Pétur er einn helsti sérfræðingur Íslendinga í sögu byggingagerðar þjóðarinnar. Hann skrifaði kaflann um Neskirkju í bókaflokknum Kirkjur Íslands og er því öllum skotum og hornum kunnugur. Pétur mun flytja framsögu um Neskirkjuhúsið og ganga síðan um kirkjuna – [...]
Miðvikudagshádegin í Neskirkju verða áfram tileinkuð orgeltónlist Bach. Nú er komið að kóraforspilum hans sem að flestra mati eru tónsmíðaleg undur. Fyrstu tónleikarnir verða 5. febrúar og hefjast kl. 12.00 (til 12.25). Á dagskrá eru Orgelbuchlein og Leipzig kóralforspilin eða sálmaforleikir (forspil að sálmum).