Fréttir

Vistspor

„Enginn getur gert allt en allir geta gert eitthvað - og líka varðandi umhverfismál og notkun gæðanna sem Guð gefur okkur í þessum heimi.“ Hugleiðing Sigurðar Árna um vistpor og ábyrgð manna gagnvart móður náttúru var flutt í Neskirkju 28. september. Hægt er að nálgast þessa íhugun á vefnum. Slóðirnar eru tru.is og sigurdurarni.is og nægilegt að [...]

By |2017-04-26T12:23:21+00:0029. september 2014 10:26|

Messa 28. september

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin Lárus æskulýðsprestur, Ari tónlistarmaður, Katrín Helga  og Andrea Ösp. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2014-09-25T09:42:32+00:0025. september 2014 09:42|

Fimmta fingurs fimmtudagar

Steingrímur Þórhallsson organisti Neskirkju verður í vetur með stutta tónleika í hádeginu annan hvern fimmtudag sem hafa hlotið nafnið Fimmta fingurs fimmtudagar. Á þessum tónleikum býður hann upp á tvær ólíkar raðir. Önnur verður sem fyrr helguð meistara Bach og spilað verður í hvert sinn tónlist frá ákeðnu æviskeiði hans. Einnig er markmiðið að spila [...]

By |2014-09-24T10:23:52+00:0024. september 2014 10:23|

Hvað gerir fimmtugur maður með krabbamein?

Sigurbjörn Þorkelsson er mikilvirkur pistlahöfundur, rithöfundur og skáld. Hann hefur opinberlega greint frá andlegri og líkamlegri baráttu sinni við krabbamein. Sigurbjörn kemur á Krossgötur miðvikudaginn 24. september og talar opinskátt um trú, afstöðu og baráttuna. Kaffiveitingar. Krossgötur eru á miðvikudögum kl. 13.30. Sjá haustdagskrá.

By |2014-09-23T10:24:19+00:0023. september 2014 10:24|

Messa 21. september

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin Lárus æskulýðsprestur, Ari tónlistarmaður, Katrín Helga  og Andrea Ösp. Samfélag og kaffisopi á Torginu.

By |2014-09-18T11:09:03+00:0018. september 2014 11:09|

Krossgötur að hefjast!

Krossgötur - opið hús. Vetrardagsrkáin hefst miðvikudaginn 17. september kl. 13:00 með ferð í Viðey. Þar mun Viðeyingurinn og bókaútgefandinn, Örlygur Hálfdánarson, segja frá merkri sögu gamla þorpsin í Viðey, sýna félagsheimili Viðeyinga sem er í gömlum vatnstanki og segja frá myndum úr sögu staðarins í gamla skólahúsinu. Neskirkja býður rútuferð og sjóferð en þátttakendur [...]

By |2017-04-26T12:23:21+00:0015. september 2014 16:05|

Messa og barnastarf 14. september

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin Lárus Jónsson æskulýðsprestur, Ari Agnarsson tónlistarmaður, Katrín Helga Ágústsdóttir og Andrea Ösp Andradóttir.Samfélag og kaffisopi á Torginu.

By |2014-09-11T11:11:43+00:0011. september 2014 11:11|

Kynningarbæklingur fyrir æskulýðs- og kórastarf.

Nýr bæklingur er kominn út sem ætlað er að kynna það starf sem er í boði í Neskirkju fyrir börn og unglinga. Þar kennir ýmissa grasa og allir ættu að geta fundið sér stað. Hægt að er senda fyrirspurnir á sigurvin@neskirkja.is.    

By |2017-04-26T12:23:21+00:008. september 2014 16:13|

Fjölskylduguðsþjónusta á Sunnudag

Næsta sunnudag hefst barnastarf Neskirkju með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.00. Æskulýðsprestur Neskirkju Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina ásamt Steingrími Þórhallssyni organista, sunnudagaskólastarfsfólki og NeDó-leiðtogum. Skráning í barnastarf Neskirkju á mánudögum og þriðjudögum er hafin.

By |2017-04-26T12:23:21+00:005. september 2014 10:57|