Fréttir

Fjórir kórar og fátækt barn

„Í hverju barni sem líður skort á Íslandi birtist skömm okkar sem samfélag og sem kirkja. Hlutverk kirkjunnar er að veita skjól og kirkjan mætir þörfum barna með margvíslegum hætti.” Hugvekja Sigurvins á aðventukvöldi 17. desember er að baki tveimur smellum, bæði á tru.is og sigurvin.annall.is.

By |2017-04-26T12:23:18+00:0017. desember 2014 21:00|

Messa fjórða sunnudag í aðventu

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Andrea, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2014-12-17T09:09:05+00:0017. desember 2014 09:09|

Malala og spámenn aðventunnar

„Þegar Malala var spurð á BBC í liðinni viku hvaðan styrkur sinn kæmi nefndi hún ást og stuðning fjölskyldu sinnar og trú sína, þá sömu trú og ofbeldismenn hennar kenna sig við. Við sem hér erum samankomin tilheyrum annari menningu, skyldri en ólíkri trúarhefð og búum langt frá vígstöðvum Talibana, en í grunninn erum við [...]

By |2014-12-16T13:49:21+00:0016. desember 2014 13:49|

Aðventukvöld

Aðventukvöld miðvikudaginn 17. desember kl. 20. Barna- og Stúlknakór Neskirkju, Hljómur, kór eldri borgara, og Kór Neskirkju syngja. Stjórnendur Jóhanna Halldórsdóttir og Steingrímur Þórhallsson. Heitt kakó og piparkökur á Torginu.    

By |2017-04-26T12:23:18+00:0015. desember 2014 16:10|

Ljósamessa þriðja sunnudag í aðventu

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Stúlknakórinn syngur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Katrín og Ari. Seld verða kerti fyrir Hjálparstarf kirkjunnar eftir messu. Samfélag [...]

By |2014-12-11T12:13:23+00:0011. desember 2014 12:13|

Aðventa

Krossgötur miðvikudaginn 10. desember kl. 13.30. Síðustu Krossgötur fyrir jól. Aðventusamvera með viðeigandi veitingum! Sr. Jakob Á. Hjálmarsson segir frá englunum og sýnir myndir.

By |2014-12-09T11:19:32+00:009. desember 2014 11:19|

Barnakór og Trölli sem stal jólunum.

Á sunnudag var vel sótt fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju en Barnakór kirkjunnar leiddi söng undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og við undirleik Ara Agnarssonar. Ein fermingarmóðir, Inga Dóra Björnsdóttir, deildi með okkur upplifun sinni af stundinni í ljóði sem gladdi okkur starfsfólkið mjög. Sem fermingarmamma ég mæti í kirkju. sybbin og pirruð að ger'essa skyssu. Aftast ég [...]

By |2017-04-26T12:23:20+00:008. desember 2014 15:45|

Fjölskyldumessa 7. desember

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina ásamt starfsfólki sunnudagaskólans, Ara Agnarssyni og Andreu Ösp Andradóttur. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2014-12-04T14:19:05+00:004. desember 2014 14:19|

Grund – stórt heimili fyrir lifandi fólk

Krossgötur miðvikudaginn 3. desember kl. 13.30. Heimsókn á Grund við Hringbraut. Við kynnumst heimilisbragnum, syngjum með heimafólki og þiggjum veitingar. Mæting Brávallagötu megin.

By |2014-12-02T12:22:31+00:002. desember 2014 12:22|

Jólaóratorían

Kór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju, ríflega 20 manna barokkhljómsveit og einsöngvarar flytja Jólaóratoríu J.S. Bach í Neskirkju föstudagkvöldið 5. desember kl. 19.30 undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Jóhanna Halldórsdóttir, alt, Þorbjörn Rúnarsson, tenór og Hrólfur Sæmundsson, baritón. Fluttar verða kantötur I, II, III og VI. Aðgangseyrir er kr. 4.000 og kr. 3.500 [...]

By |2014-12-01T09:57:58+00:001. desember 2014 09:57|