Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Stúlknakórinn syngur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Katrín og Ari. Seld verða kerti fyrir Hjálparstarf kirkjunnar eftir messu. Samfélag og kaffisopi á Torginu.