Kaffihúsamessa í safnaðarheimilinu. Þátttakendur sitja við borð og geta fengið sér hressingu meðan á messu stendur.

Ungir piltar úr sókn aðstoða við messuhald og Þorgeir Tryggvason leikur á gítar undir söng. Félagar úr kór Neskirkju leiða sönginn. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

Litir og blöð fyrir yngsta fólkið.

Verið hjartanlega velkomin.