Messa og barnastarf kl. 11:00 á vígsludegi Neskirkju, pálmasunnudegi. Prestar eru: sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Jón Ómar Gunnarsson sem predikar. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Frumflutt verða tvö verk eftir Steingrím: Andvaka við ljóð Bólu-Hálmars og Fantasía við sálm Hjálmars H. Ragnarssonar, Hve margt er það líf. Barnastarfið fer fram í safnaðarheimilinu. Kaffiveitingar að messu lokinni.