Er hægt að líkja Guði við prjónandi konu eða karl? Hinn prjónandi Guð?
Hin árvissa prjónamessa verður í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 11 þann 22. júní. Þar ætlum við að velta fyrir okkur skapandi handavinnu, sem einnig eykur samfélag, nýtni, veitir hugarró og svo margt fleira. Og við ætlum að tala um Guð.
Formið er kaffihúsamessa og eru fólk sérstaklega hvatt til að taka handavinnuna með og prjóna, hekla eða sauma undir messu. Það er hins vegar engin skilda og allir eru hjartanlega velkomnir.
Meðlimir í prjónahópi Neskirkju aðstoða við helgihaldið. Félagar í kór kirkjunnar leiða söng.
Blöð og litir fyrir yngstu kynslóðina.
Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.