Mánudagurinn 23. nóvember kl. 12.00. Sýning Leifs Ýmis Eyjólfssonar, Bílar, á Torginu í Neskirkju er óður til ástar og haturssambands nútímans við þennan þarfasta þjón sinn, sjálfrennireiðina. Listamaðurinn mætir á Torgið í Neskirkju í hádeginu og segir þar frá verkunum og hugmyndinni að baki sýningunni. Verið öll hjartanlega velkomin!