Sunnudaginn 4. október n.k. verður að venju messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Sørens G. Frandsens organista kirkjunnar. Í messunni opnar sýning Leifs Ýmis Eyjólfssonar: Bílar. Svo að messu lokinni ganga gestir á Torgið, virða listina fyrir sér og leiða hugann að því sem hún tjáir og endurspeglar.