Sunnudaginn 1. mars er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og af því tilefni verður fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju kl. 11. Stúlknakór og Krílakór kirkjunnar syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar og Tinnu Sigurðardóttur. Verið hjartanlega velkomin til stundarinnar við fáum góða gesti í heimsókn og að venju verður söngur og gleði á stundinni.