Krossgötur mánudaginnn 23. febrúar kl. 13.00 Óli H. Þórðarson, fyrrum framkvæmdastjóri Umferðarráðs heldur erindið ,,Allt sem þér viljið…” Hugsjónir baráttumanns fyrir bættum samskiptum í umferðinni og víðar
Óli H. Þórðarson lagði mikið af mörkum til að breyta hugarfari Íslendinga og hegðun á sviði umferðarmála. Vart er hægt að gera sér í hugarlund hversu mörgum mannslífum og miklum verðmætum barátta hans fyrir bættri umgengni á því mikilvæga sviði hefur skilað. Leiðarstef hans í þeirri baráttu var að vinna með hvatningu og jákvæðum skilaboðum fremur en að vanda um fyrir fólki. Þegar hann hóf störf hjá Umferðarráði 1978 stjórnaði hann þætti í Ríkisútvarpinu, og þar óskaði hann eftir ábendingum um tillitssama ökumenn og bað hlustendur þannig að velja með sér „ökumann ársins“. Hann var síðan árum saman með þætti í útvarpinu þar sem hann miðlaði fróðleik og upplýsingum um umferðina á léttan og aðgengilegan hátt. Tillitssemi í umferðinni tengir hann við grunngildi kristninnar. Gullna reglan var leiðarljósið hans, en upphaf hennar er einmitt yfirskrift erindis Óla. Óli H. hefur jafnan einsett sér að vinna að þeim viðfangsefnum sem gefa honum gleði og tilgang. Hann er lagahöfundur og hefur samið tónlist, meðal annars við þekkt bænavers. Hann segir okkur frá þessu hugðarefni sínu og ýmsu öðru, og við hlýðum á tónlist eftir hann.