Messa, barnastarf og opnun myndlistarsýningar kl. 11:00. Félagar úr Háskólakórnum syngja undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar sem er við hljóðfærið. Barnastarfið á sínum stað með söng og gleði. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Sýning Jónu Hlífar Halldórsdóttur, Orðið, opnar á Torginu og verður fjallað um verkin í predikun. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.