Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 sunnudaginn 5. mars. Tveir barnakórar syngja: Barnakór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista og Drengjakór Reykjavíkur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Almennur söngur, gleði og auðvitað biblíusaga. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Starfsfólk barna og æskulýðsstarfs tekur þátt í guðsþjónustunni. Hressing og samfélag á Torginu að henni lokinni.