Samverur fyrir börn og foreldra þriðjudaginn 6., miðvikudaginn 7. og fimmtudaginn 8. desember kl. 16.30. Kirkjan er opin frá kl. 16 og hægt er að fá sér hressingu. Við leggjum áherslu á ró, höfum dýnur á gólfinu, slökum á, tendrum kerti, syngjum og segjum jólasöguna. Föndur að gjöf til að taka með heim. Stundin hentar börnum í leikskóla og yngstu bekkjum grunnskóla. Umsjón hafa sr. Steinunn og Steingrímur organisti.