Krossgötur hefjast þriðjudaginn 13. september kl. 1300. Að vanda er boðið upp á fræðsludagskrá og eru erindin í höndum sr. Skúla S. Ólafssonar auk gestafyrirlesara sem deila með okkur fróðleik og frásögn. Kaffi og kruðerí. Þriðjudaginn 13. september mun sr. Skúli vera með erindi sem hann kallar „Davíð var lítill drengur“ en þar fjallar hann um frásögn úr Fyrri Samúelsbók um hjarðsveininn Davíð og einnig kemur við sögu risinn Golíat!