Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Ritningarlestra dagsins má finna á vef kirkjunnar.
Sunnudagaskólinn hefst inni í kirkju en færist svo í safnaðarheimilið. Umsjón hefur Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson sem leikur undir söng. Þar verða sögur, söngur og leikur.
Sameiginleg hressing og samfélag á torginu eftir stundirnar.