Annar í hvítasunnu kl. 18.00. Neskirkja heldur áfram grænni göngu og á hvítasunnu gróðursetjum við ávaxtatré í garði kirkjunnar. Ásta Camilla Gylfadóttir, landslagsarkitekt, verður á svæðinu og gefur góð ráð á sviði garðyrkju. Kór Neskirkju syngur sumarsöngva og vorsálma undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Glaðlegar veitingar og Steinunnarborð með litum og myndum fyrir börnin! Sr. Skúli S. Ólafsson leiðir stundina.