Sunnudaginn 24. apríl kl. 11:00 koma saman í Neskirkju kórarnir sem organisti kirkjunnar, Steingrímur Þórhallson, stýrir. Þetta eru: Drengjakór Reykjavíkur, Stúlknakór Neskirkju, Kór Neskirkju og Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju. Óhætt er að lofa litríkum söng í mörgum áttundum og metnaðurinn verðru ósvikinn. Tónlistin verður í hávegum höfð! Barnastarfið verður í höndum Katrínar, Stefaníu, Andreu, Ara og Odds. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Að vanda eru kaffiveitingar á Kirkjutorgi að messu lokinni.