Sunnudaginn 18. október kl. 11:00 er mikið um dýrðir í Neskirkju og fjöldi kóra tekur þátt í messu, sem helguð er öfum og ömmum. Hljómur, kór eldri borgara syngur ásamt barna- og unglingakórum kirkjunnar. Þá leggur Drengjakór Reykjavíkur sitt af mörkum í helgihaldinu. Fermd verður Ingibjörg Sigurðardóttir. Allir eru velkomnir en messan verður með léttu sniði sem hæfir þeim sem messan er helguð.