Messa kl. 11:00. Barnastarf vetrarins hefst með sunnudagaskóla. Sameiginlegt upphaf og síðan er farið í safnaðarheimili kirkjunnar. Umsjón hafa Ari, Andrea, Katrín og sr. Sigurvin. Brúður, leikrit, Nebbi, söngur og gleði. Allir aldurshópar finna eitthvað við sitt hæfi. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið og leiðir söng félaga í Kór Neskirkju. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffiveitingar á Kirkjutorgi.