Í prédikun dagsins koma fyrir skopteiknarinn Halldór Baldursson og mynd hans af Guði sem félagsráðgjafa. ,,Guð er félagsráðgjafinn góði, sem er ætíð til staðar og leiðbeinir þeim sem þurfa þess við með móðurlegri umhyggju, og okkur ber að reynast þeim sem þurfa þess við sem félagsráðgjafar að guðlegri fyrirmynd. Það er fyrirheiti okkar sem kennum okkur við félagsráðgjafann góða að hún er ætíð til staðar með sitt brosmilda viðhorf, tilbúin til að aðstoða okkur við að standa undir ábyrgð okkar í þessum heimi. Guði sé lof fyrir það.“ Prédikun Sigurvins Lárusar Jónssonar má lesa á tru.is.