Messa og barnastarf á mæðradaginn. Ekkert hlutverk hefur yfir sér dýpri dulúð og meiri ást en það að vera móðir. Í prédikun dagsins verður fjallað um mæður og hvað þær geta kennt okkur um listina að lifa. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar. Kór Neskirkju leiðir söng og flytur kórverk undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarf er í höndum sr. Skúla, Andreu og Ara Agnarssonar. Súpa og samfélag á Torginu eftir messu.