Kór Neskirkju, Kammerkór Seltjarnarneskirkju, Söngfjelagið, Dómkórinn og Söngsveitin Filharmónía ætla að bjóða upp á hressilega tónleikaveislu laugardaginn 28. febrúar í Seltjarnarneskirkju klukkan 17.  Flutt verða verk frá barrokktímanum til dagsins í dag, íslensk verk í bland við verk frá Eistlandi, Svíþjóð, Japan og Bandaríkjunum. Hver kór syngur nokkur lög og síðan syngja allir fimm kórarnir saman í lokin. Þessi magnaði tónlistarkokteill kostar aðeins 1000 kr. Hlökkum til að gleðjast með ykkur á góunni.