Messa og barnastarf á Biblíudaginn kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea, Ásta Kristensa og Ari. Eftir messu verður sýning Einars Garibaldi, Impression, opnuð á Torginu.