„Við vitum öll, börn jafnt sem fullorðin, að dýrar gjafir, metnaðarfull matargerð og Georg Jensen jólaóróar, eru ekki þau atriði sem færa okkur jól en þau eru hinsvegar hluti af ástartjáningu fjölskyldunnar og slíka tjáningu skyldi aldrei smætta. Við höldum jól eins veglega og okkur er unnt, vegna þess að gæðastundir með ástvinum skipta okkur máli, sem og sú tilfinning að tilheyra stærra samhengi í tilverunni.” Prédikun Sigurvins í aftansöng á aðfangadag er að baki tveimur smellum, bæði á tru.is og sigurvin.annall.is.