Messa og barnastarf kl. 11. Sameigninleg upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin, Katrín, Ari og Oddur. Í lok messu verður tekið við framlögum til Kristniboðsins. Samfélag og kaffisopi á Torginu.