NeDó hópurinn var áberandi á nýafstöðnu Landsmóti ÆSKÞ, sem haldið var á Hvammstanga sl. helgi. Mótið sóttu yfir 600 manns og voru auk myndarlegs hóps þátttakenda frá Neskirkju fjölmargir leiðtogar sem gáfu vinnu sína við framkvæmd mótsins. Fremst í flokki var Katrín Helga Ágústsdóttir en hún hélt utan um sjálfboðaliðahópinn. Skemmtiatriði NeDó vakti mikla lukku en Jane Fonda var fyrirmyndin.