Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari og kveður söfnuðinn að sinni en hann mun þjóna sem prestur í Noregi í vetur. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin Lárus æskulýðsprestur, Ari tónlistarmaður, Katrín Helga  og Andrea Ösp. Samfélag og kaffisopi á Torginu.