Sumarnámskeið hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Neskirkju þriðjudaginn 14. ágúst kl. 20. (Það er ekki of seint að skrá sig á námskeiðið.) Fundað verður í kirkjunni. Þar verður efni og fræðslufyrirkomulag kynnt. Farið verður einnig yfir samvinnu kirkju og heimilis á þessum undirbúningsvetri. Upplýsingar verða afhentar um efni og mikilvægar dagsetningar.

Kennsla hefst síðan daginn eftir, miðvikudaginn 15. ágúst kl. 10. Kennt verður miðvikudag – föstudags kl. 10 – 16. Messa verður sunnudaginn 19. ágúst kl. 11 en þá ganga fermingarbörnin til altaris í fyrsta sinn í fylgd foreldra/forsjármanna sinna. Kennsla heldur síðan áfram mánudaginn 20. ágúst og þriðjudaginn 21. ágúst. Fræðslan verður í safnaðarheimilinu og kirkjunni. Börnin munu fá mat í hádeginu og hressingu eftir þörfum.