Messsan sunnudaginn 8. júlí, 2012, hefst kl. 11 að venju. Hið óvenjulega er, að hvorki organisti né kór þjóna í messunni. Messuliðirnir eru hefðbundnir en í stað tóns og undirleiks verða messuliðir lesnir. Prédikun verður á sínum stað og altarisgangan sömuleiðis. Prestur er Sigurður Árni Þórðarson. Eftir messu verður kaffi á Torginu. Messur í Neskirkju eru öllum opnar.