Okkur í NeDó, unglingastarfi Neskirkju og Dómkirkju hefur löngum fundist það bjartsýni að halda sumardaginn fyrsta í miðjum aprílmánuði. Þeirri bjartsýni fögnuðum við í Vesturbæjarlauginni í morgun sem var í umsjá unglingaleiðtoga úr NeDó. Katrín Helga stýrði dagskrá, Daníel Ágúst var með hugleiðingu, Heiða, Þorbjörg og Helena sungu og Jökull og Guðný sáu um ritningalestra. Að lokinn helgistund stýrðu NeDó leiðtogar leikjum í lauginni. Sannkallað Bjartsýnisbusl.