Vorið 2009 setti KFUM og KFUK á Íslandi upp söngleikinn !Hero í Loftkastalanum og var sú sýning ein metnaðarfyllsta sem kristilegt æskulýðsstarf hefur staðið fyrir. !Hero hópurinn kemur saman í kvöld í Neskirkju í tilefni af nýútkomnum DVD diski með sýningunni, sem einungis er fáanlegur í gegnum leikstjóra !Hero Rakel Brynjólfsdóttur.