Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Í messunni verða fermdir Árni Birgir Eiríksson og Kristján Óli Eiríksson Miðhúsum 33. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Bogi og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.