Messa kl. 11. Vígður verður nýr skírnarfontur sem er gjöf Þórs Sigmundssonar og Guðrúnar Rannveigar Stefánsdóttur og barna þeirra. Frumflutt verur nýtt sálmalag eftir organistann, Steingrím Þórhallsson. Gissur Páll Gissurarson, syngur. Sr. Örn Bárður Jónsson, sr. Toshiki Toma og sr. Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari en sá síðastnefndi prédikar. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Ritningarlestra annast Ingibjörg R. Guðmundsdóttir og Rúnar Reynisson. Kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.