Á pálmasunnudag er venjuleg messa og barnamessa kl. 11 og þá verður 52 ára afmæli Neskirkju minnst. Ekki er fermt í Neskirkju á venjulegum messtíma. Félagar úr kór Neskirkju syngja, Steingrímur spilar, messuhópur þjónar og sr. Sigurður Árni prédikar í sunnudagsmessunni. Eftir hádegi á pálmasunnudag verður fermingarmessa, sú þriðja þetta vorið.