Níu leiðtogar frá Neskirkju sóttu Sólheimanámskeið nú um helgina en námskeiðið er samstarfsverkefni fimm aðila sem starfa að æskulýðsmálum í Þjóðkirkjunni. Margt var í boði en leiðtogarnir sóttu námskeið hjá sr. Gunnari Jóhannessyni sem bar heitið Er fáránlegt að trúa á Guð? og námskeið um leiki og leiklist sem Gunnar B. Gunnarsson leikstjóri kenndi. Á leiðinni heim var sólheimabros á öllum þátttakendum eins myndirnar sýna.