Hópur unglinga úr starfi Neskirkju er nú staddur á Landsmóti æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar á Ólafsvík. Alls eru sex krakkar úr æskulýðsfélaginu Fönix á mótinu og sex eldri leiðtogar úr Graduate NeDó sem gefa vinnu sína við stjórn mótsins. Um 360 ungmenni alls staðar að af landinu eru á mótinu sem gengur vonum framar. Heimasíða mótsins er blogg.visir.is/landsmot og þar er bloggað jafnóðum fréttum af mótinu.