Leikjanámskeiðin í Neskirkju eru hafin og er hress hópur af krökkum mættur til leiks á fyrsta námskeiðið. Námskeiðin eru viku í senn frá mánudegi til föstudags, klukkan 13–17. Á námskeiðunum gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni og boðskap hennar í leik og starfi, auk þess að öðlast dýrmæt tengsl við nýja félaga. Fyrstu myndir eru komnar inn á myndasíðuna.

Við erum með traustan hóp unglinga sem starfa á námskeiðinu með okkur Sunnu Dóru og hafa þau flest verið virk í NeDó starfinu í vetur. Þær eru Kristín María (14 ára), Rakel (14 ára), Þórdís (15 ára), Elín (15 ára) og Jóa (15 ára). Auk unglinganna eru tvær stúlkur aðstoðarleiðtogar hjá okkur þær Alexandra Diljá (11) sunnudagaskólaleiðtogi og Karen (12) en hún mun sækja fermingarfræðsluna eftir að leikjanámskeiðunum lýkur í ágúst. Á leikjanámskeiðunum er fjölbreytt dagskrá og verður farið í ferðalög í hverri viku, farið í leiki, unnin verkefni og fræðst um umhverfi barnanna.