NeDó, unglingastarf kirkjunnar, hélt árshátíð síðastliðinn þriðjudag og þar var mikið um dýrðir. Á matseðli var dýrindis nautakjötsréttur og ís og ávextir á eftir. Vel var sótt af núverandi, fyrrverandi og verðandi NeDó-ingum og sérstakir heiðursgestir voru þau Hans Guðberg og Guðmunda sem sáum um NeDó starfið um árabil. Sr. Guðni Már Harðarsson kom og sagði gamansögur eins og honum er einum lagið. Myndir af herlegheitunum er hægt að sjá á myndasíðunni.