Skírn í upphafi messu. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Ursula Árnadóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr messuhópi helgarinnar lesa ritningarlestra og fara með bæn. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffi, súpa og brauð á Torginu eftir messu. Ræðuna er hægt að lesa og hlýða á hér.