Guðsþjónusta 24. júlí
Guðsþjónusta kl. 11. Lítill drengur borinn til skírnar. Sungnir verða skírnarsálmar, bæði algengir og sjaldheyrðari. Svo íhugum við merkingu skírnarinnar, tákn hennar, vatnið og minnumst við skírnar okkar við skírnarfontinn. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Undirleik annast María Kristín Jónsdóttir. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Eftir messu verður [...]
Messa sunnudaginn 17. júlí
Messa kl. 11.00. Í guðspjalli dagsins kemur fram hið kunna stef Silla og Valda - ,,af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá”. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn undir stjórn Maríu Jónsdóttur. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag, ávextir og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Messa sunnudaginn 10. júlí
Messa kl. 11:00. Fjallað verður um málefni hælisleitenda í ljósi nýliðinna atburða í Laugarneskirkju. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Ef veður leyfir sitjum við úti í blíðunni. Samfélag og kaffisopi.
Messa 3. júlí
Trú, von og takkaskór er þema næsta sunnudags í messu kl. 11 þar sem skoðað verður ýmislegt sem textar dagsins og velgengnin á Evrópumótinu eiga sameiginlegt. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng, sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Heitt á könnunni aða vanda í safnaðarheimilinu að lokinni [...]
Messa 26. júní
Messa kl. 11. Félagar út Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sr. Skúli S. Ólafsson prédikar og þjónar fyirr altari. Ef veður leyfir verður messa í garðinum. Samfélaga og kaffisopi.
Messa 19. júní
Þau tímamót urðu í vor í 75 ára sögu Neskirkju að sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir var ráðin prestur við kirkjuna og er hún þar með fyrsta prestvígða konan sem þar er skipuð til þjónustu. Svo skemmtilega vill til að fyrsta messa sr. Steinunnar við Neskirkju, verður 19. júní, á sjálfan [...]
Messa 12. júní
Messa kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Skúli S. Ólafsson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Messa 5. júní
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestur sr. Sveinn Valgeirsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Skráning vegna ferminga 2017
Miðvikudaginn 1. júní hefst skráning vegna ferminga 2017. Hægt er að hringja í síma 511-1560 eða koma við í Neskirkju við Hagatorg á skrifstofutíma milli klukkan 10 og 15. Mögulegt er að taka frá fermingardag um leið og barn er skráð í fræðsluna. Fermt verður laugardaginn 8. apríl (fyrir pálmasunnudag) kl. 11.00 [...]
Blóm og söngur
Átt þú eftir að kaupa sumarblóm? Föstudagskvöldið 27. maí verður blásið til blómasölu í safnaðarheimili Neskirkju. Þá mun Kór Neskirkju flytja glaðleg vor- og sumarlög kl. 20 og síðan tekur við hin árlega blómasala þar sem sumarblóm og kryddjurtir verða til sölu. Blómin eru ræktuð af kórstjóranum sjálfum, Steingrími Þórhallssyni, [...]