Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Messa 15. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Stefanía, Guðrún, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |12. janúar 2017 17:47|

Krossgötur hefjast á ný

Rúnar Helgi Vignisson, dósent í ritlist, verður á Krossgötum miðvikudaginn 11. janúar með erindi sem hann kallar Skapandi skrif. Rúnar Helgi ræðir hin mörgu tilbrigði ritlistarinnar og sýnir áhugaverð dæmi um texta sem settir eru saman af ólíku tilefni. Krossgötur er alla miðvikudaga kl. 13.30. Boðið er upp kaffi og kruðrí.

By |10. janúar 2017 11:43|

Messa og sunnudagaskóli 8. janúar

Barnastarfið hefst aftur af fullum krafti þann 8. janúar. Þá verður messa í kirkjunni kl. 11 og hana hefja allir saman en svo fara börnin yfir í safnaðarheimili í sunnudagaskólann. Í kirkjunni leikur María Kristín Jónsdóttir  á orgelið og leiðir söng með félögum úr Kór Neskirkju. Prestur er sr. Steinunn [...]

By |4. janúar 2017 16:21|

Nýársdagur

Hátíðarmessa kl. 14.00. Hátíðarsöngvar sungnir. Kór Neskirkju syngur. Organisti, Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson.

By |27. desember 2016 11:39|

Gamlársdagur

Aftansöngur kl. 18.00. Hátíðarsöngvar sungnir. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

By |27. desember 2016 11:34|

Hátíðarguðsþjónusta

Hátíðarguðsþjónusta, annan í jólum, kl. 14.00. Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju, syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Eftir guðsþjónustu verður hátíðarkaffi á Torginu.

By |27. desember 2016 11:33|

Annar í jólum

Jólaskemmtun barnastarfsins kl. 11.00. Jólasaga og söngvar. Gengið í kringum jólatré og góðir gestir koma í heimsókn. Léttar veitingar.

By |27. desember 2016 11:31|

Jóladagur

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Hátíðarsöngvar sungnir. Kór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestar Skúli S. Ólafsson og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

By |22. desember 2016 12:13|

Nóttin var sú ágæt ein

Söngvar á jólanóttu kl. 23:30. Háskólakórinn syngur jólasálma. Vonartextar Biblíunnar lesnir. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Prestur Skúli S. Ólafsson.

By |22. desember 2016 12:09|

Aðfangadagur kl. 18

Aftansöngur. Hátíðarsöngvar sungnir. Kór Neskirkju syngur. Einsöngur Hallveig Rúnarsdóttir. Trompet Steinar Kristinsson. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestar Skúli S. Ólafsson og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

By |22. desember 2016 12:06|