Neskirkja: höfundur hennar og sérstaða í byggingarsögunni.
Fimmtudaginn 9. mars kl. 19:57 flytur Pétur Ármannsson arkitekt erindi í Neskirkju. Þar ræðir hann ræðir sögu, hönnun og útlit Neskirkju, sem markaði tímamót á ýmsan hátt, bæði hin nýja borgarsókn og svo hið móderníska útlit kirkjunnar. Eins og á við um öll mannleg verk, tengjast ýmsar sögur þessari byggingu og hún [...]
Borg og byggð, skipulag, verkefni og áskoranir
Krossgötur miðvikudaginn 8. mars kl. 13.30. Hilmar Þór Björnsson, arkitekt, er afkastamikill í sínu fagi og hefur sterkar skoðanir á því hvernig á að skipuleggja byggð í þéttbýli. Hann er annar höfundurinn að Grandahverfinu hér í Vesturbænum og heldur úti bloggi þar sem hann ræðir útlit og fyrirkomulag við hönnun húsnæðis á [...]
Fjölskyldumessa á æskulýðsdaginn
Á æskulýðsdaginn, þann 5. mars, verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 með þátttöku æskulýðsstarfsins. Barnakórar syngja undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur, undirleikari er Ari Agnarsson. Yfirskriftin er Trúum með hjartanu. Umsjón með guðsþjónustunni hafa Stefanía Steinsdóttir og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Að guðsþjónustu lokinni býður æskulýðsfélagið upp á tertu í líki Neskirkju, sem [...]
Tímamótakvöld í Neskirkju: Gerður Helgadóttir
Fjallað verður um verk Gerðar Helgadóttur í Neskirkju fimmtudaginn 2. mars kl. 19:57 í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar, sem var vígð árið 1957. Suðurglugginn í kirkjunni er meðal stærstu verka Gerðar og meðal síðustu verka hennar. Sýnt verður úr heimildarmynd um þennan kunna listamann og erindi flutt. Háskólakórinn syngur í [...]
Félag eldri borgara
Krossgötur miðvikudaginn 1. mars kl. 13.30. Gísli Jafetsson, formaður Félags eldri borgara kemur í heimsókn. Málefni eldri borgara varða okkur öll og fátt veitir betri innsýn í samfélagsgerð og siðferði en þjónustan við þau sem byggðu upp þau gæði sem síðari kynslóðir njóta. Gísli segir okkur frá verkefnum Félags eldri borgara. Kaffiveitngar.
Við messum snjódaginn mikla
Það verður messa og sunnudagaskóli hjá okkur í dag, 26. febrúar, kl. 11 að venju. Allir velkomnir.
Messa 26. febrúar
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju syngur. Stjórnandi Hildigunnur Einarsdóttir. Orgnisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn, mikill söngur. Umsjón Stefanía og Ari. Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnudagaskóla.
Heimsókn í Árbæjarsafn
Á Krossgötur 22. febrúar verður farið í heimsókn í Árbæjarsafnið og skoðuð sýningin Hjáverkin: Atvinnusköpun kvenna í heimahúsum. Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingur og Gerður Róbertsdóttir, verkefnastjóri munavörslu taka á móti hópnum. Lagt af stað í rútu frá Neskirkju kl. 13.30.
Tímamótakvöld
Í tilefni 60 ára vígsluafmælis Neskirkju lítum við til baka og horfum í kringum okkur. Þrjár kvöldstundir fjöllum við um þennan helgidóm, sögu hans, útlit og innviði. Neskirkja markaði tímamót á ýmsan hátt, bæði hin nýja borgarsókn og svo hið móderníska útlit kirkjunnar. Þá er eitt af stærstu glerverkum Gerðar [...]
Biblíudagurinn og konudagurinn
Sunnudagurinn 19. febrúar er bæði Biblíudagur og Konudagur. Þann dag verður messa og sunnudagaskóli kl. 11. Við hefjum helgihaldið saman. Í predikun verður fjallað um Biblíuna og konur í tilefni dagsins. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng. Organisti Douglas Brotchie. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Barnastarfið er í umsjá [...]