Kristján Steingrímur Jónsson
Að lokinni messu, sunnudaginn 3. desemeber opnar sýning Kristjáns Steingríms Jónssonar myndlistarmanns í Safnaðarheimili Neskirkju. Á sýningunni verða málverk og teikningar sem unnin eru úr jarðefnum og jarðögnum frá Betlehem og Fæðingarkirkjunni. Rætt verður um sýninguna í predikun dagsins. Sýningin stendur fram í febrúar á næsta ári.
Messa, sunnudagaskóli og opnun sýningar.
Fyrsta sunnudag í aðventu verður messa og sunnudagaskóli kl. 11. Eftir sameiginlegt upphaf færist sunnudagaskólinn í safnaðarheimilið þar sem til stendur að mála piparkökur. Í messunni syngur Drengjakór Reykjavíkur og félagar úr Kór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Skúli S. Ólafssonar þjónar fyrir altari og sr. Steinunn A. [...]
Sléttunga – byggð við ystu nöf
Krossgötur þriðjudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Níels Árni Lund, ráðuneytisstjóri og rithöfundur, hefur gefið út bækur um æskuslóðir sínar og fjallar um þær í erindi sínu. Kaffiveitngar. Í hádeginu fyrir Krossgötur er boðið upp á súpu og brauð gegn vægu verði.
Minningar frá Madrid og nágrenni
Kristinn R. Ólafsson, rithöfundur og fyrrverandi fréttaritari. Pistlar hans í útvarpinu vöktu jafnan mikla athygli. Hann er áhugamaður um íslenska tungu og býr að auðugum sagnasjóði um spænska menningu og mannlíf. Kaffiveitingar. Bænastund í hádeginu. Einning er boðið upp á súpu og brauð gegn vægu verði áður en Krossgötur hefjast.
Messa 19. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gleði og söngur í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Petite Messe Solennelle eftir Gioachino Rossini
Kór Neskirkju, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir messósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór og Fjölnir Ólafsson bassi flytja Petite Messe Solennelle eftir Gioachino Rossini á tónleikum í Neskirkju 18. nóvember kl. 17 næstkomandi. Píanóleikur er í höndum þeirra Hrannar Þráinsdóttur og Evu Þyriar Hilmarsdóttur og Erla Rut Káradóttir leikur á harmóníum. [...]
Kristin trú og loftslagsbreytingar
Krossgötur þriðjudaginn 14. nóvember kl. 13. 14. nóvember. Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í siðfræði: Kristin trú og loftslagsbreytingar. Um synd og náungakærleik. Hver eru tengsl kristinnar trúar við þau málefni sem hæst ber í samtíma okkar? Loftslagsmálin og siðfræði náttúruverndar eru kristnum mönnum hugleikin. Súpa og brauð í hádeginu á vægu verði.
Messa og sunnudagaskóli 12. nóvember
12. nóvember er kristniboðsdagurinn í Þjóðkirkjunni. Þann dag verður messa og sunnudagaskóli að vanda kl. 11. Við hefjum stundirnar saman inni í kirkjunni en svo fara börnin í sunnudagaskólann þar sem sr. Ása Laufey, Katrín og Ari stýra söng, leik og fræðslu. Í messunni munu félagar úr kór Neskirkju syngja [...]
Samtal um siðaskipti: Steinunn Kristjánsdóttir
Þriðjudaginn 7. nóvember kl. 20.00. Þegar 500 ár og ein vika verða liðin frá upphafi siðaskiptanna köllum við eftir samtali um þennan stóra sögulega viðburð. Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur heimsækir okkur en hún heldur því fram að siðaskiptin hafi verið afturför. Við spjöllum saman um gagnsemi og ógagn sem hlaust af því [...]
Pípuhattar og annað praktískt
Krossgötur þriðjudaginn 7. nóvember kl. 13. Sigurður Þór Baldvinsson, yfirskjalavörður í utanríkisráðuneytinu:Úr skjalakompum utanríkisþjónustunnar. Sigurður gefur okkur innsýn í sögur og fróðleik íslensku utanríkisþjónustunnar. Á undan, kl. 12.05, er bænastund í kirkjunni. Á Torginu er boðið upp á súpu í hádeginu gegn vægu verði.