Aðfangadagskvöld
Aðfangadagskvöld kl. 18.Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestar eru sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson sem predikar. Söngvar á jólanótt kl. 23.30. Sungnir verða jólasálmar og vonartextar Biblíunar lesnir. Háskólakórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Sr. Skúli [...]
Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14. Kór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar og Þorsteins Freys Sigurðssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestar eru sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir sem predikar.
Fjórði sunnudagur í aðventu
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleði og gaman í barnastarfinu. Umsjón Katrín og Ari. Samfélag og kaffiveitingar á Torginu eftir messu.
Þriðji sunnudagur í aðventu 15. desember
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga, Gunnar og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Aðventukvöld
Aðventukvöld og ljósahátíð sunnudaginn 15. desember kl. 20.00. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng. Fermingarbörn lesa ritningartexta og lýsa upp stundina. Dr. Eiríkur Bergmann prófessor flytur hugvekju. Að lokinni samveru í kirkjunni er boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu.
Krossgötur, Barnakór, Biblíulestur og Nedó falla niður í dag
Vegna óveðursspár fellur kirkjustarfið niður í dag eftir hádegi. Við vonum að allir geti haft það gott heima og biðjum þess að allir séu öruggir.
Biblíuleshópur fyrir konur
(Mynd af vef HÍB) Þriðjudaga kl. 18 er hittast konur í safnaðarheimili kirkjunnar og lesa saman Biblíuna. Næstu tvo þriðjudaga verður farið yfir texta sem tengjast jólum, þeir lesnir og ræddir frá ýmsum sjónarhornum. Sr. Steinunn Arnþrúður hefur umsjón með samverunum sem eru jafnan um klukkustund. Allar konur [...]
Fjölskylduguðsþjónusta 8. desember
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur. Aðventan og biðin eftir jólunum eru þema messunnar og verður skoðað í máli og myndum, leik og söng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson og prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Starfsfólk barnastarfsins aðstoðar við helgihaldið. Hressing á torginu fyrir unga og [...]
Skammdegisbirta 5. desember
Fyrsta fimmtudagskvöld í mánuði kl 18 - 21 er Skammdegisbirta í Neskirkju. Þá bjóðum við upp á létta kvöldvökustemmningu, með tónlist, fyrirlestrum, þéttri súpu og guðaveigum (fyrir þau sem vilja).Það þykir ekki góðs viti þegar börn fá kartöflu í skóinn, það er víst áskorun um bætta hegðun og framkomu þess [...]
Krossgötur
Krossgötur þriðjudaginn 3. desember kl. 13.00. Áslaug Gunnarsdóttir, tónlistarkennari, kynnir og leikur tónlist. Heitt á könnunni, kruðerí og létt stemmning!