Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur. Aðventan og biðin eftir jólunum eru þema messunnar og verður skoðað í máli og myndum, leik og söng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson og prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Starfsfólk barnastarfsins aðstoðar við helgihaldið. Hressing á torginu fyrir unga og aldna eftir helgistundina.