Aðalfundur Nessóknar
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn fimmtudaginn 16. maí kl. 18.00 í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Sóknarnefnd Neskirkju.
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn fimmtudaginn 16. maí kl. 18.00 í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Sóknarnefnd Neskirkju.
Messa og barnastarf kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Líf og fjör í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún og Ari. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11:00. Barn borið til skírnar. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið á sínum stað með söng og gleði. Kaffi á Torginu að guðsþjónustu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 21. apríl kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni.Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og er þetta fyrsta messa hennar að loknu námsleyfi. Sunnudagaskólinn flytur sig svo í safnaðarheimilið þar sem búast má við söng og sögum og gleði [...]
Guðsþjónusta kl. 11:00. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Barnastarfið er á sínum stað með söng og gleði. Kaffi á torginu að guðsþjónustu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
Messaog barnastarf kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið í öruggum höndum leiðtoganna. Kirkjukaffi á Torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
Hátíðarmessa kl. 8.00. Félagar úr Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Páskakaffi og páskahlátur á Torginu kl. 9.00. Barnastund og páskaeggjaleit kl. 11.00 undir stjórn leiðtoga í barnastarfinu og sr. Skúla.
Guðsþjónusta á föstudeginum langa kl. 11.00. Píslarsagan lesin og hugleidd. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
Skírdagur kl. 18.00. Boðið er til máltíðar í kirkjuskipinu í messu þar sem slegið verður upp borði og stólum raðað. Kirkjugestir sem eru aflögufærir koma með mat með sér og leggja borð og við snæðum saman og deilum mat hvert með öðru. Brauð og vín er blessað og því deilt út undir borðum. Prestur er sr. Skúli [...]
Krossgötur þriðjudaginn 2. apríl. Við ætlum að heimsækja Listasafn Árneskinga og leggjum af stað í rútu kl. 13:00 frá Neskirkju. Í Hveragerði fáum við leiðsögn um sýningarnar sem standa nú yfir í safninu. Svo fáum við okkur hressingu að því loknu og höldum svo aftur heim á leið um kl. 16:00. Athugið að við verðum á þriðjudegi og þetta [...]