Quigong
Krossgötur mánudaginn 25. mars kl. 13.00. Ásbjörn Egillson, fyrrum kirkjuhaldari í Dómkirkjunni, kynnir fyrir okkur kínversku undra- leikfimina Quigong. Kaffiveitingar
Krossgötur mánudaginn 25. mars kl. 13.00. Ásbjörn Egillson, fyrrum kirkjuhaldari í Dómkirkjunni, kynnir fyrir okkur kínversku undra- leikfimina Quigong. Kaffiveitingar
Hátíðarmessa kl. 11:00 á pálmasunnudegi, sem er messudagur Neskirkju, en kirkjan var vígð 1957. Messunni er útvarpað. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið fer fram í safnaðarheimilinu. Prestur er sr Skúli S Ólafsson. Kaffi og samfélag eftir messu.
Krossgötur mánudaginn 18. mars kl. 13.00. Fastur liður í starfi Krossgatna er að fá til okkar þetta afburða tónlistarfólk sem leikur og kynnir fyrir okkur ýmis tónverk. Tríó Vest mynda þessar tónlistarkonur: Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir fiðla, Victoria Tarevskaia selló, Áslaug Gunnarsdóttir píanó. Þær spila fyrir okkur 2 kafla úr Brahms píanótríó, Tango eftir A. Piazzolla og 3 lög eftir Sigfús Halldórsson. Allir [...]
Tónleikar Kór Neskirkju í Landakotskirkju kl. 20.00 þriðjudaginn 19. mars. Á tónleikunum verða fluttir mansöngvar þar sem umfjöllunarefnið er oftar en ekki óendurgoldin ást. Höfundar verkanna eru tónskáldin John Dowland, Thomas Morley, Thomas Tomkins, Ralph Vaughan Williams, Claudio Monteverdi, Carlo Gesualdo og Atli Heimir Sveinsson. Á undan hverju tónverki verður lesinn texti verksins í lauslegri [...]
Messa og barnastarf kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið er á sínum stað með söng, sögum og leik. Kaffi á Torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
Krossgötur mánudaginn 11. mars kl. 13.00. Afhelgun bókaþjóðar. Haraldur Hreinsson, lektor við Háskóla Íslands flytur erindi sem hann kallar, Afhelgun bókaþjóðar, íslenskar bókmenntir og afhelgurnarferli nútímans. Kaffiveitingar.
Messa kl. 11:00. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson, fríkirkjuprestur messar en hann þjónaði árum saman í Neskirkju, bæði sem æskulýðsfulltrúi og prestur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn og flytja stólvers undir stjórn Steingríms Þórhallssonar sem er við hljóðfærið. Barnastarfið er á sínum stað undir stjórn leiðtoganna. Kaffisopi á Torginu að messu lokinni.
Æskulýðsguðsþjónusta kl. 11:00. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Leiðtogar í barnastarfinu leiða stundina ásamt presti. Kaffisopi á Torginu að samveru lokinni!
Krossgötur mánudaginn 4. mars kl. 13.00. Már Jónsson prófessor flytur erindi um Svartfugl Gunnars Gnnarssonar. Árið 1929 sendi Gunnar frá sér skáldsöguna sem sló rækilega í gegn í Danmörku. Bókin er enn lesin á Íslandi og hefur margoft verið prentað síðan hún var fyrst þýdd árið 1938. Vinnugögn Gunnars eru varðveitt og sömuleiðis frumheimildir að svonefndu Sjöundármáli [...]
Útför herra Karls Sigurbjörnssonar fer fram frá Hallgrímskirkju, mánudaginn 26. febrúar kl. 13:00. Fyrir vikið falla áður auglýstar Krossgötur sem áttu að fara fram á sama tíma niður.