Messa 30. júní
Kaffihúsamessa í safnaðarheimili Neskirkju sunnudaginn 30. júní kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Litir og blöð fyrir yngstu kynslóðina. Verið öll velkomin.
Kaffihúsamessa í safnaðarheimili Neskirkju sunnudaginn 30. júní kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Litir og blöð fyrir yngstu kynslóðina. Verið öll velkomin.
Guðsþjónusta og opnun myndlistarsýningar Erlu S. Haraldsdóttur fer fram í Neskirkju sunnudaginn 23. júní kl. 11:00. Fjallað verður um verkin í predikun. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Í framhaldinu gefst fólki tækifæri til að ganga um á Torginu og njóta sýningarinnar. Ef veður leyfir fer helgihaldið fram í garðinum við safnaðarheimilið. Kaffisopi.
Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson. Kaffi og kruðerí á Torginu að messu lokinni. Verið velkomin!
Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju mæta í sumarklæðunum og syngja við raust undir stjórn organistans og garðyrkjbóndans Steingríms Þórhallssonar. Í predikun verður lagt út af orðum hins nafntogaða Gídeons: ,,Æ, Drottinn, hvernig ætti ég að frelsa Ísrael? Ætt mín er aumasta ættin í Manasse og ég smæstur í ætt minni.“ Prestur er sr. [...]
Messa kl. 11:00. Sönghópur Marteins syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffisopi á torginu að messu lokinni. Í stólræðu verður lagt út af orðum Postulasögunnar: ,,En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál og enginn þeirra taldi neitt vera sitt er hann átti heldur höfðu menn allt [...]
Messa kl. 11 á þrenningarhátíð. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Prestur leggur út frá sögunni um Abraham í Mamre lundi þegar þrír óvæntir gestir birtust. Hressing og samfélag á Torginu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Annan í hvítasunnu, 20. maí, er helgistund í garði kirkjunnar kl. 18.00, þar sem félagar úr Kór Neskirkju syngja, sr. Skúli flytur hugvekju og að vanda setjum við niður ávaxtatré í garðinum.
Hátíðarmessa kl. 11:00 á hvítastunnudag 19. maí. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson og í predikun fjallar hann um sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur, Orðið, sem er á Torginu. Að messu lokinni ræðir sr. Skúli við listamanninn um verkin.
Vorhátíð Neskirkju þann 12. maí kl. 11: Hoppukastalar, grill og gaman. Hin árlega vorhátíð er á sunnudag. Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 þar sem stúlknakór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja. Að henni lokinni verður farið út í garðinn. Þar verða hoppukastalar og andlitsmálning auk þess sem pylsur verða grillaðar ofan í gesti. Verið öll [...]
Við endurvekjum Neskirkjuhlaupið næstkomandi uppstigningardag 9. maí kl. 11.00. Dagskráin hefst inni í kirkjuskipinu þar sem boðið er upp á hvetjandi helgistund. Að því loknu fer hver á sínum hraða eftir sóknarmörkum Nessóknar, alls 10 km. Einnig má fara styttri leið (sjá kort). Þegar heim er komið bjóðum við upp á heilnæmar veitingar. Hlaupið hentar fólk á [...]