20161023_112807Barnastarfið hefst aftur af fullum krafti þann 8. janúar. Þá verður messa í kirkjunni kl. 11 og hana hefja allir saman en svo fara börnin yfir í safnaðarheimili í sunnudagaskólann. Í kirkjunni leikur María Kristín Jónsdóttir  á orgelið og leiðir söng með félögum úr Kór Neskirkju. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Í safnaðarheimilinu fagna Katrín og Ari gömlum vinum eins og Nebba og Rebba. Léttar veitingar í safnaðarheimili eftir stundina.